(0)
  • 75.200,00 KR
    31.600,00 KR
    32.000,00 KR
    0,00 KR
    24.900,00 KR
  • Gull & Silfur - Á miðjum Laugaveginum í yfir 40 ár

     

    Gull & Silfur, gullsmíðavinnustofa og verslun, varð fjörtíu ára á síðasta ári, en verslunin var stofnsett í byrjun apríl árið 1971.  Í upphafi var verlunin til húsa við Laugaveg 35, en árið 2005 flutti verslunin í rúmbetra húsnæði við Laugaveg 52. 

    Alla tíð hefur verlunin verið í eigu sömu fjölskyldu, en núverandi eigendur eru hjónin Sigurður G. Steinþórsson gullsmíðameistari og Kristjana Ólafsdóttir. Við hlið þeirra starfar dóttir þeirra og yngsti gullsmíðameistarinn í fjölskyldunni, Sólborg S. Sigurðardóttir. Auk þeirra starfa gullsmiðirnir Einar Þórhallsson og Tómas Malmberg á verkstæðinu þar sem þeir setja báðir setja sinn svip á handverkið. Þá hefur Valdís Óskarsdóttir verslunarmær hefur staðið vaktina í búðinni til áratuga.

    Afmælisveislan stóð allt árið 2011, en á síðasta ári gáfum við aðdáendum okkar á Facebook demanta og perlur í tilefni af þessum tímamótum.  Það er aldrei að vita hverju við tökum upp á nýju ári, svo verið dugleg að fylgjast með hér á heimasíðunni og á facebooksíðu Gulls & Silfur.

     

  • Við látum drauma rætast...

     

    Okkur finnst mest um vert að geta smíðað eftir hugmyndum viðskiptavinanna og látið drauma rætast. Það er okkar sérgrein.Ein virtasta gullsmíðavinnustofa landsins, sem þekkt er af einstöku handbragði og listsköpun sem skilar sér í hvers konar smíði úr gulli eða öðrum eðalmálum. Við handsmíðum nánast hvað sem er en handverk okkar hefur hlotið mikið lof um víða veröld, enda vandfundið verkstæði með slíkan metnað. Listræni andinn svífur milli borða á vinnustofunni, og skiptir þá ekki máli hvort unnið er að viðgerðum eða flóknu og fínlegu handverki.Við höfum smíðað fjöldann af verðlaunagripum og gripum fyrir sérstök tilefni. Þetta eru allt frá litlum nælum í stóra gripi á stöpli eða fæti. Eins hefur gullsmiðum okkar verið fengið það hlutverk að sérsmíða skartgripi fyrir tískuviðburði í gegnum tíðina. Meðal sérgreina er handsmíði trúlofunarhringa, þar sem hver og einn fær sérstaka meðhöndlun á vinnustofunni. Allt er gert í höndunum svo hvert par hafi sérstöðu og beri okkur fagurt vitni til framtíðar.

Sýnishorn Ýmsar vörur

105.000,00 KR
28.200,00 KR
16.700,00 KR
18.800,00 KR
0,00 KR
78.000,00 KR

 

Við fögnum sumrinuSumardagurinn fyrsti á sér langa sögu á Íslandi og hefur lengi verið einn helsti hátíðisdagur Íslendinga. Dagurinn vakti vonir í brjóstum manna um bjarta og hlýja daga, blóm og gróður. Þótti við hæfi að færa ástvinum sínum gjöf á þessum degi og lifir sá siður enn.

 

Því langar okkur í Gulli & Silfri að taka á móti sumrinum með sól í sinni og bjóðum 15% afslátt af öllum vörum í verlun okkar í dag miðvikudag, föstudag og laugardag.

 

Gleðilegt sumar!

 

 

Gull & Silfur á Facebook

Trúlofunarhringar Sjálfsagt mesta úrvalið

Handsmíðaðir hringar í sérflokki

Allt er gert í höndunum svo hvert par hafi sérstöðu og beri okkur fagurt vitni til framtíðar. Frá fyrstu tíð höfum við haldið í gamla handverkið með handsmíðinni og boðið persónulega þjónustu við val á hringum og breytingum á þeim. Þúsundir ánægðra kaupenda bera vott um góða þjónustu og hagstætt verð, enda fátt eins gefnadi fyrir gullsmið en ánægður viðskiptavinur.

Netverslun Leiðsögn

Það skal ítrekað að allar ljósmyndir hér á síðunni er birtar með fyrirvara um að viðkomandi vara sé enn fáanleg enda í flestum tilvikum um sérsmíði að ræða. Þá er enginn gripur nákvæmlega eins. Netverslunin er einföld leið til að skoða úrvalið og versla heima í stofu. Viðskiptavinir eru beðnir að hafa samband í síma 552-0620 og velja greiðslufyrirkomulag þegar heildarupphæð viðskipta liggur fyrir.